Lykilorð til lærdóms

Kynning á samstarfsverkefni í upplýsingamennt og samfélagsfræði á unglingastigi í Grunnskóla Borgarfjarðar

 Jónína Eiríksdóttir og Þóra Magnúsdóttir

Undirrituð starfaði í hópi upplýsingamenntar á síðasta ári (2007-2008) í Borgarfjarðarbrúnni. Öllum, sem að þessari mennt koma, er  mikið í mun að finna leiðir til að tvinna saman svið upplýsinga og aðrar greinar, annað starf, enda er það þráfaldlega lagt til í námskránni. Við héldum því meðal annars fram að tímar, sem legðust saman, þannig að báðir væru á staðnum, kennari fagsins og upplýsingaversins að vinna að sama marki, væru lykillinn að því að eitthvað gerðist í þessa áttina. Slíka tvöfalda tíma hefur verið afar erfitt að næla í fjárhagslega, koma fyrir í stundatöflu og ná samhengi með,  ég býst við að það sé ekki bara í litlum skóla eins og okkar. Slíkir tímar hafa þó fundist í litlu magni hér í skólanum og verið nýttir í þágu kennara og bekkja við að nýta upplýsingatæknina við nám í einstökum greinum.  Lengst mun hefðin fyrir slíku samstarfi vera á milli skólasafnsins og kennara í samfélagsfræði. Sérstaklega reyndum við með okkur í undirbúningi heimildaritgerðar í 9. bekk um heimsstyrjöldina síðari. Þegar verkin eru skoðuð í baksýnisspeglinum finnst okkur að hér hafi  fæðst verkfæri, sem fallið sé til að byggja brú á milli lærdómsþrepa – skólastiga ef við viljum nota það orð. Þess vegna erum við hér.

Við höfum báðar miklar væntingar til heimildavinnu og teljum báðar að til mikils sé að vinna ef hægt væri að kenna góð vinnubrögð allt frá byrjun skólagöngunnar. Í 9. bekk gætum við gengið að ákveðinni grunnfærni við lykilorðasmíð, leit að heimildum, vinnu í Word og ýmsum fleiri forritum, m.a. Open Mind (samsvarar Mind Manager).

Þegar skoðuð var hugmyndafræði frá Skotlandi um lykilorð til lærdóms (Keywords and Learning KAL) varð okkur ljóst að við vorum að vinna á svipuðum nótum. Við skoðuðum ferlið, sem skotarnir settu vinnu með lykilorðin og reyndum að setja okkar vinnu á sama hátt í flæðirit. Við notuðum forritið Visio til að sýna framvindu vinnunnar.  Þetta eina blað er auðvelt að hafa á borðinu sínu þegar unnið er eftir uppskriftinni og sjá hvar vinnan er stödd, hvað er búið og hvað við eigum eftir.  Þetta er auðvelt fyrir okkur, sem höfum unnið eftir ferlinu í nokkuð mörg ár, en eflaust þyrfti meiri útskýringar fyrir þá, sem koma ókunnugir að því.

Til að sýna hér á kynningunni, settum við saman lítinn vef, sem hægt er að fikra sig eftir til að sjá sýnishorn af ferlinu og þeirri vinnu, sem liggur að baki því.